Glæsilegir fulltrúar VG í Kraganum

Tvöföldun á fylgi VG í skoðankönnun í Kraganum kemur ekki á óvart. Framboð Vinstri grænna með Guðfríði Lilju, Ögmund og Ólaf Þór í efstu sætum er afar sigurstranglegt. Guðfríður Lilja er forystukraftur sem um munar, Ögmundur hefur reynsluna og Ólafur afar vinsæll af störfum sínum í Kópavogi. Mér kæmi ekki á óvart að einnig hann banki á dyr þegar kemur að úthlutun þingsæta. Þjóðin þarf á traustri forystu VG að halda nú þegar á móti blæs.


mbl.is VG tvöfaldar fylgið í Kraganum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Einarsson

Skil ekki þetta fryllutak sem Guðfríður hefur á ykkur, sjáið ekki þetta hæðnisglott á henni, "þið eruð hvort eð er svo vitgrönn"  að þið skiljið ekkert sem við erum að fara.

Hörður Einarsson, 8.4.2009 kl. 23:45

2 Smámynd: Karl Tómasson

Guðfríður skákar öllum.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 9.4.2009 kl. 00:57

3 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Meginstef Guðfríðar Lilju í gærkvöldi var áherslan á lýðræðið. Það er sá þáttur sem að ég hef talið veiku hliðina á starfi Alþýðubandalags og Vinstri grænna í framhaldi.´

Spurð út í Evrópumál þá taldi hún það líkt og annað eiga að ganga farveg lýðræðislegrar niðurstöðu þjóðar. Slík afstaða mun stuðla að því að félagslegar áherslur munu nema lönd og ná að nýrri strönd.

                        Með kærri páskakveðju,   G

Gunnlaugur B Ólafsson, 9.4.2009 kl. 10:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband