24.11.2008 | 18:07
Misnotkun ESB-sinna í mörgum samtökum
Yfirgangur þeirra sem berjast fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið hefur undanfarið birst mönnum í mörgum hagsmuna- og almannasamtökum. Dæmi um það eru Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins með ESB-áróðursmann í starfi framkvæmdastjóra. Ekki er annað hægt en undrast langlundargeð LÍU í því samfloti og viðbrögð stjórnar þess eru ofur eðlileg. Ágreiningur hér innanlands um kvótakerfið og stjórn fiskveiða má ekki leiða til þess að menn horfi framhjá þeim voða sem afsal á forræði yfir sjávarauðlindunum til Evrópusambandsins hefði í för með sér.
LÍÚ hótar úrsögn úr SA | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Verð að játa að mér finnast þessir blessuðu ESB-sinnar fara fram með skipulegu ofbeldi. Hér er ekki verið að berja á fólki, en öll röksemdafærsla þeirra er í "hót-tón".
Baldur Gautur Baldursson, 25.11.2008 kl. 16:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.