17.6.2008 | 21:21
Dapurlegur endir á góðum ásetningi
Mér finnst vanta skýringu á því hvers vegna bjarndýrið var skotið á þessari stundu.
Gátu menn búist við að bangsi biði einfaldlega án viðbragða eftir því að verða svæfður?
Fjölmiðlaupphlaupið og glannalegar yfirlýsingar staðgengils umhverfisráðherra á fyrri stigum málsins þóttu mér vera skot yfir markið. Við verðum að temja okkur meiri hófstillingu í umfjöllun um sjálfsagða viðleitni til að bjarga lífverum í útrýmingarhættu. Það er einfaldlega skylda íslenska ríkisins sem aðila að viðkomandi aðþjóðasáttmálum og þarflaust að blanda einkaaðilum í kostnaðarhlið slíkra mála.
Nú er að sjá hvort þriðji hvítabjörninn birtist eins og draumspakur maður norður þar sér fyrir sér.
Vonandi verða stjórnvöld þá betur undirbúin og fjölmiðlarnir á lágu nótunum.
Ísbjörninn að Hrauni dauður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég vona bara að það verði engin vopnlaus maður á vegi hans ef sá þriðji finnst þ.e. ef hann er hér á landi.
En auðvitað á að reyna að bjarga þessum dýrum ef hægt er.
Marinó Már Marinósson, 19.6.2008 kl. 13:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.