10.12.2008 | 09:44
Hvað verður um stækkunaráformin í Straumsvík?
Það er ekki aðeins að tekjur Landsvirkjunar hafi dregist mikið saman vegna lækkunar á álverði heldur má einnig búast við að álfyriræki, bæði Rio Tinto Alkan, Alcoa og Century dragi við sig að ráðast í nýfjárfestingar.
Hvað verður um áformin um stækkun í Straumsvík?
Hvað verður um fyrirhugaðar framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun?
Eru líkur á að Helguvíkurál haldi áfram með framkvæmdir?
Álver á Bakka við Húsavík er augljóslega úti í buska.
Fróðlegt væri að fá heildarmat innvígðra á stóriðjudæmið hérlendis, bæði framkvæmdaáform og einnig raforkusamninga sem passað er að birta ekki í skjóli viðskiptaleyndar.
Rio Tinto dregur saman seglin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Á meðan er íbúum Norðurþings - og sveitarfélaginu sjálfu - haldið í heljargreipum einhvers samnings við Alcoa, sem virðist koma í veg fyrir að aðrir aðilar geti komið til Húsavíkur með meðalstóran atvinnurekstur og nýtt eitthvað af orkunni á Þeistareykjum. Ég veit um nokkur dæmi þess að fyrirtækjum hafi verið neitað um aðstöðu hér fyrir norðan.
Björgvin R. Leifsson, 10.12.2008 kl. 11:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.