Áhrifamikil og beinskeytt ræða Styrmis

Það var áhrifamikið að hlýða á ræður þeirra Styrmis Gunnarssonar og Katrínar Jakobsdóttur í Salnum í Kópavogi á fullveldisdaginn. Styrmir beindi máli sínu tæpitungulaust til Sjálfstæðismanna og hvatti þá til að hrinda sókn ESB-sinna innan flokksins. Hann sagðist raunar ekki í vafa um að að þögull meirihluti flokksmanna myndi standa fast á stefnu hans og verja auðlindir þjóðarinnar og vænti að hið sama væri uppi á teningnum hjá forystu flokksins. Í því sambandi nefndi hann sérstaklega varaformanninn, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.

Katrín Jakobsdóttir taldi brýnt að fjalla um fullveldið og styrkja það í breyttum heimi og koma á framfæri við þjóðina staðgóðum upplýsingum um Evrópusambandið.

Framundan eru söguleg átök um hugi landsmanna. Forysta Vinstri grænna hefur ítrekað andstöðu sína við að Ísland gerist aðili að ESB og nú er beðið svara frá Sjálfstæðisflokknum og Framsókn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Hansson

Ég vona að þessi fundur sé aðeins byrjunin og Heimssýn bjóði upp á fundi með framsögumönnum, fyrirspurnum og umræðum. Auknar upplýsingar eru nauðsynlegar. Styrmir var mjög beinskeyttur og umfjöllun Katrínar um lýðveldið og það að vera Íslendingur var góð og laus við pólitískar upphrópanir.

Haraldur Hansson, 1.12.2008 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband